the story of us

sorglega seint

18.01.2008 07:48:41 / elsab79

úff

jæja... sveinsprófið á morgun og ég er orðin frekar stressuð yfir því að vera ekkert voðalega stressuð. :S

en eftir morgundaginn þá þarf ég aldrei aftur að taka próf í hári, ég get huggað mig við það.... ja nema að ég falli í einhverju... en það er kannski ekki alveg í boði...

Svo er bjálaða að gera hjá mér þessa dagana, núna að undirbúa mig undir prófin. Mamma og pabbi ætla svo að bjóða stelpunni og Óla út að borða eftir sveinsprófin, það er víst alveg leyndó hvar það er en ég kemst að því á morgun. Eftir helgi er hittingur hjá mér og Sollu...  Solla!!! það er ekki í boði að gleyma þessu núna ;)   svo á Ásdís afmæli á föstudaginn næsta og ég er að fara út að borða með stelpunni og fleirum. Svo eru Doddi og Ragnheiður að fara að gifta sig 2. feb og að sjálfsögðu er skildumæting þangað.  Helgina eftir erum við að fara á þorrablót fyrir norðan og svo 13. feb er Tenerife í viku... þannig að þetta er stíft prógram.

En ég hef engann tíma fyrir þetta rugl, þarf að koma mér í sturtu eftir bodycombat tímann hjá Þóru og fara svo aðeins upp í skóla og vesenast eitthvað... Allt að gerast


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.12.2007 12:42:38 / elsab79

stór stelpa...

jájá stelpan er orðin stór og setur upp ljótu vínrauðu lestarstjórahúfuna og segir tjútjúúú  hehehe

já ég er að útskrifast í dag og vildi bara láta ykkur vita ;)  ég er bara búin að vera að vinna á hundraði og í prófum í des og er við það að kafna úr verkefnum já og skít þegar ég lít við heima hjá mér. En það er allt að komast í lag, byrjaði að henda út drasli og hausum úr íbúðinni í gær og það klárast í dag ásamt því að koma jólagjöfum á sinn stað.

Ætla ekki að skrifa nein jólakort í ár frekar en síðustu ár vegna "anna" huhumm :| en er þrátt fyrir leti mína búin að fá nokkur og fékk líka þessa fallegu mynd af dóttur þeirra Erlu Jónu og Halldórs henni Kristínu Köru og þvílíkt fallegt barn og ég á nú bara von á henni á stofuna í næstu viku í klippingu og greiðslu... hún er algjört lukkutröll... ja fyrir utan stóra nefið, eyrun og allt nema hárið og það er samt ekki bleikt.. æji hún er með fullt af hári... hihi

En ætlaði nú bara svona rétt að kíkja hingað inn svo að þið þurfið ekki að lesa sömu færsluna aftur og aftur..... já og eitt ég ætla að segja mig úr stjórn Bingóklúbbsins :klikk: ég er búin að reyna að panta sal og jólasveinastimpla og þeir eru ekkert nema fýlan og vælið þarna í skipholtinu, vilja ekkert fyrir mig gera, segja að við mætum aldrei þegar ég panta....

EN   Gleðilega jól og farsælt komandi ár og drífið ykkur að panta klippingu á nýja árinu

muniði hvað maður var eitthvað að pæla mikið í því þegar það var að koma 2000...... 2008 er á leiðinni, hoppuðum við yfir nokkur ár eða er ég ekki lengur 21....:S


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.10.2007 19:33:56 / elsab79

norður norður

jájá stelpan fór norður síðustu helgi í afmæli og var ég sponseruð af Dodda og Ragnheiði hihi takk fyrir það... forfermingarveisla hihihi. Það var svo svakalega veisla að ég hefði verið svakalega svekkt ef að ég hefði misst af þessu.

Svo er Linda syst að reyna að fá mig norður í skírn næstu helgi, veit ekki alveg hvernig það fer, ef hún hefur bíl sem þarf að ferja og spáin er góð þá getur vel verið að ég og nýji tjúttfélaginn minn mætum þangað en sjáum til með það..

Ég get ekki sagt að ég bingóstjórinn sé eitthvað paránægð með strákana í bingóklúbbnum Vilhjálmi.... já haldið þið ekki að þeir hafi bara tekið herrakvöld Stjörnunnar fram yfir bingóið á föstudaginn.. ég og Eva alveg klárar í slaginn og þá eru þeir bara með leiðindi...pfff

En vildi bara láta vita af mér svo að fólk færi ekki að leita að mér í minningargreinunum....


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.09.2007 21:48:47 / elsab79

BINGÓ

JÁ JÁ bingó er það....

Bingóklúbburinn Vilhjálmur skellti sér í bingó í Vinabæ síðastliðinn miðvikudag. Ekki gekk fyrsta lota vel en við gefust alls ekki upp og verður þetta að sjálfsögðu endurtekið þangað til fyrsti vinningur kemur í hús og nægt fjármagn verður fyrir stimplum :D  

Ég ætla að hafa þetta stutt og laggott og koma með nokkrar góðar setningar sem heyrist í þessum hóp og þá sérstaklega þegar hann mætir í Vinabæ..

- allir spila

-Stjáni, Stjáni er kross núna?

Stjáni: BINGÓ...... Salurinn:NNNEEEIIII!!!!!

-það rignir oft í Tour de France!!!

-(uppahafsstefið úr FIRE)


-er enginn komin með nóg af þessum Inga

-úr salnum: BINGÓ... klúbburinn:  ohhh neiii

komið nóg í bili, ekki langt í næsta fund ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.09.2007 16:39:28 / elsab79

veiði veiði veið

ég var að koma heim úr svakalegri veiðiferð...    fórum norður í svakalega ferð, mætti þangað í kvöldmat sem var sniðinn eftir mínum þörfum eða þ.e.a.s. allir halda að ég ráði alltaf hvað er í matin og svona en nei!!! það er alltaf einhver búin að hringja í mig og stjórnast með mig sem varð til þess þessa helgina að ég fékk ekki íslensku kjötsúpuna mína sem ég vildi heldur bara einhvern grillmat sem að sjálfsögðu var líka svakalega góður

Föstudagskvöldið fór nú aðallega í að drekka hvítvín og vaka eftir strákunum... þeir komu svo rétt um fjögur og prufuðu nú allir nuddstólinn hihi .... enda er það möst að tékka á honum. Reyndar áður en stólinn var prufaður var tekinn upp gítar og byrjunin á FIRE tekin og var ekkert slakað á eftir það og hljómaði byrjunarstef Fire alla helgina.  Á lau.morgun tóku veiðimennirnir sig til og skoðuðu ánna, meira var það ekki ;)   og eftir langan dag var potturinn tekin á þetta á meðan pabbi og mamma sáu um eldamennsku og var grillað læri fyrir valinu... eftir matinn voru tónleikar hjá pabba og upphitunin var í höndum Stjána og Arnars Smára og svo fylgdi Þórólfur með í bakröddum og munnhörpu hihi. Svo var skundað á DISKOTEK (betra að hafa þetta rétt) og þar voru sko tekin dansspor sem sennilega eiga eftir að sjást á helstu dansstöðum eftir þetta. Við kenndum húsvíkingum nýja dansa upp á sviði og vorum hreinlega að brillera.  Á sunnudeginum var svona líka erfitt að vakna fyrir suma og byrjaði veiðidagurinn seint.  Pápi og mamma áttu svo afmæli á sunnudeginum og var slegið til veislu, pabbi varð 56 ára þó svo að ég hafi verið búin að halda því fram að hann væri 55 og svo áttu þau hjónakornin 35 ára brúðkaupsafmæli

En þetta var snilldarferð í alla staði þó svo að heimferðin hafi farið í bakið á fólki hihi og verð ég nú bara að þakka Þórólfi fyrir að vera með bíl þar sem allt okkar dót og þar á meðal gæsalús komst fyrir og svo Bensa fyrir að koma okkur alla leið þrátt fyrir fáránlega mikin vind á kjalarnesi.  Hver gerir sjálfum sér það að búa þarna... ég bara spyr ;)

en svo að lokum þá ætla ég að gera Arnari Smára örlítin greiða og þar með okkur hinum líka....

 

 

FIRE


I'm driving in my car, I turn on the radio
I'm pulling you close, you just say no
You say you don't like it, but girl I know you're a liar
`Cause when we kiss, Fire

Late at night I'm takin' you home
I say I wanna stay, you say you wanna be alone
You say you don't love me, girl you can't hide your desire
`Cause when we kiss, Fire

You had a hold on me, right from the start
A grip so tight I couldn't tear it apart
My nerves all jumpin' actin' like a fool
Well your kisses they burn but your heart stays cool

Romeo and Juliet, Samson and Delilah
Baby you can bet their love they didn't deny
Your words say split but your words they lie
`Cause when we kiss, Fire

ble...


» 10 hafa sagt sína skoðun

09.09.2007 13:31:35 / elsab79

nana nana búbú!!!

ég var að eignast lítinn frænda og er að springa af stolti því sagan segir að hann sé alveg eins og ég. En hef ekki séð hann enn svo að eg ætla nú ekki að lofa ykkur því að hann sé jafn gríðarlega fallegt barn og ég var hahahah

En fyndna við þetta allt er að í morgun sat ég hérna í stofunni þegar ég allt í einu fann það á mér að Linda væri að eiga... svo að ég hringi í hana og Baldur og það er slökkt á símunum og þá hringi ég að sjálfsögðu í alvitra móður mína og spyr hana að þessu og að sjálfsögðu var þetta rétt hjá mér. Svo stökk ég í ræktina og þegar ég kom svo heim fékk ég hringingu frá mömmu þar sem hún sagði mér það að litli krúttlegi frændi minn væri kominn í heiminn vúhú

Nú er ég enn spenntari yfir "veiðiferðinni"... þó svo að ég hafi alveg verið búin að átta mig á því að systir mín væri ólétt og yrði búin að eiga þegar ég kæmi norður þá er það bara allt annað þegar það er kominn lítill gutti sem bíður þess að hitta stóru frænku sína og læra eins fljótt og hann getur hver sé best!!!!! hihi

En þið vitið að alltaf þegar ég plana hlutina klikka þeir svo ég er pínu hrædd við að ferðin klikki eitthvað 8|  t.d. í gær þegar það átti að vera party heima og ég ætlaði á tónleika þá fór einmitt allt í kerfi og ekkert fór eins og ég ætlaði...

en er spennt spennt spennt vúhú já og pabbi það er enginn af "veiðifélögum" mínum búnir að "rúlla sér yfir mig" þannig að ég ætla að biðja þig að vera kurteis við drengina hihihi svo að þeir  þori að tala við mig áfram í framtíðinni

en læt í mér heyra seinna já og jú

Stjörnustelpur er að gera það gott úti og eru að valta yfir liðin þarna og að sjálfsögðu eru Solla og Ásdís að brillera enda kenndi ég þeim allt sem ég kann...... ( þ.e. að klæða sig í skóna!!!)

en nú er ég hætt ble...


» 5 hafa sagt sína skoðun

04.09.2007 22:55:05 / elsab79

fullt að fara að gerast júhú!!

já nú er allt að gerast...

á laugardaginn eru tónleikar með Chris Cornell sem mig dauðlangar á og er mjög sennilega að fara að láta það eftir mér hhihihi  og Orri það er ekki í boði að klikka núna :haha:  eftir tónleikana verður sennilega einhver hittingur heima hjá mér þó svo að ég viti ekki alveg hverjir verða þar eða hvort að einhver komi hihi  en það er alfarið í höndum Kelu að klára þetta.

Helgina eftir það er það skólahittingur.. efast ekki um að þá verði stuð á fólkinu.... allt að gerast og jafnvel verður horft á Stelluna og tekin nokkur vel valin dansspor hhihii... ekki satt Ásta?  Já og Bryndís og Arna þið eruð velkomnar að sjálfsögðu.. allir að mæta. Ættum jafnvel að hittast snemma og fá okkur eitthvað í svanginn og eins og ég segi horfa á Stellu eða Venna Páer (sem klikkar ekki)

Helgina þar eftir verður farið í veiði huhumm... ég veit ég veit... þið hugsið., "hvað ætlar hún að veiða ;) " og rétt hjá ykkur, ég á ekki eftir að veiða neitt. Fer bara að skoða litla krílið sem Linda verður búin að eiga og svo á hann pápi afmæli á sunnudeginum. Þannig að þetta verður góð helgi þrátt fyrir að Stjáni og co haldi sig í ánni og ég verði á ferðalagi um Húsavík hihi... tökum samt sennilega gott tjútt með pabba og mömmu á kvöldin hihi

En annars er bara brjálað að gera hjá stelpunni bæði í skóla og i vinnu og hefur hún ekkert voðalega mikið um tíma til að gera eitthvað annað 8|

en hey var ég búin að segja ykkur frá konunni sem fór í smárabíó með dóttur sína og ætlar að gefa henni ís eftir myndina..... þegar hún er búin að borga ísinn handa dóttur sinni þá finnur hún fyrir mikilli löngun í ís handa sér.. þannig að hún segir við stúlkuna í afgreiðslunni  "heyrðu ég ætla fá einn lítinn, settu hann bara á kortið".. og stelpan hikar eitthvað þannig að hún endurtekur sig "ég ætla að fá einn lítinn ís settu hann bara á kortið"...  stelpugreyið labbar að ísvélinni og setur ís á kortið og lætur hana fá það hahahahahaha

og annað

.... við vorum valin stofa ársins á ísmótinu 2007 en annað virtist ekki vera marktækt  hihi:haha:

jæja ekki meira frá mér í bili


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.08.2007 19:24:39 / elsab79

jesús hvað það er langt síðan..

það er svo langt síðan að ég ætlaði að koma þessu frá mér en eins og allar einstaklega busy framakonur þá hefur maður aldrei tími til að gera neitt af því að þá gæti sófinn farið eitthvað...

WHY JÁ WHY!!!   Hvað fær fólk til að kaupa sér OPEL..... er þetta fólk ekki með neitt í hausnum???!!!!  Við Helga vorum að taka bensín um daginn þegar við rákumst á fjölskyldu frá svörtustu Afríku sem bað okkur um hjálp til að opna bensínlokið á bílaleigubílnum sem þau voru með og NB komust varla í...  ég fór að sjálfsögðu og ætlaði að aðstoða þau en það var alveg sama hvað við gerðum ekki opnaðis helvítis bensínlokið.. Eftir dágóða stund ákveðum við að hringja í bílaleiguna og athuga með þetta...  Hvað haldiði að hafi þurft að gera... jesús minn.  Það þurfti að opna allar dyrnar og snúa lyklinum 2x í bílstjórahurðinni.  HVAÐ ER ÞAÐ????  ef maður ætlar að fara að taka bensín um miðjan vetur í snjókomu og roki og er alalalalein þá þarf maður að byrja á því að labba hringinn til að opna allar dyrnar og svo að bílstjórahurðinni til að snúa lyklinum 2x fara svo og opna bensínhólfið og svo að dæla bensíni. Svo þegar búið er að fylla tankinn þá þarf maður að moka úr bílnum. OPEL er bara fyrir fávita.  Þannig að ef þú átt OPEL og ert að lesa þetta ekki kommenta þá "ha er ég líka fáviti?!!" því það staðfestir bara það sem ég var að segja!!!!

EN annars er bara fínt að frétta af  mér, er að undirbúa mig undir litakeppni og vantar módel sem má gera eitthvað skemmtilegt við svo að ég geti unnið, nenni ekki að hlusta á "ekki taka mikið" "ég vil bara hafa það ljóst" en já... er einhver til :)

Við Helga erum svo að verða búnar með tjúttskammtinn fyrir árið... :/    þannig að við verðum bara að taka fyrirfram hihi  neinei en ég fer nú að taka það aðeins rólega, þetta er ekki alveg að gera sig. Tek sennilega  menningarnótt og svo ekki meir nema að það séu að sjálfsögðu góð tilefni til eins og þegar við stelpurnar þurfum að hittast í byrjun sept hihi

en ætla að hætta í bili...

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

22.07.2007 11:29:48 / elsab79

Rólegt með börnunum

Þar sem ég var búin að ákveða rólega helgi fór hún ekki alveg eins og hún átti að fara....    Elsa hvenær lærir þú að plana ekki neitt, það fer aldrei eins og þú ætlar..

Á föstudaginn fórum við Birgitta með litlu systrum okkar í tívolí og út að borða, við borðuðum á DOMO og það var alveg frábær skemmtun og mjög góður matur. Ég held að Júlía eigi eftir að monta sig yfir þessu í all langan tíma.  Á eftir kíktum við á Óliver og þar hitti ég loksins eftir ótrúlega langan tíma manneskju sem að við Helga erum búnar að vonast til að hitta síðustu þrjár helgar.... en var Helga með mér... NEI  En þar sem ég var að fara að vinna á laugardeginum gat ég ekki stoppað lengi og stelpurnar þoldu ekki hitann á loftræstikerfislausa staðnum þannig að við röltum aðeins og fórum svo bara heim. 

Á laugardeginum ákvað ég að vera heima með flakkarakvöld með börnunum en endaði það þannig.... NEI    ja reyndar horfðum við á tvær myndir en ég var undir mikilli pressu að kíkja aðeins út á tjúttið þannig að á miðnætti skellti ég mér í diskógallann og náði í Helgu svo að við gætum kíkt á ólíver og ath hvort að við myndum hitta diskógoðið okkar aftur.  Við fórum í svitabaðið og röltum einn hring og þá var bara ekki annað í stöðunni nema að færa okkur um set og kíktum við á Vegamót sem var nú ekki endilega skárri kostur. Í röðinni hittum við Kötu sem lýsti staðnum ansi vel "helmingurinn þarna inni eru svartir, hinn helmingurinn heldur að hann sé svartur" hahaha Við kíktum svo á Kaffibarinn og þar er fólk ekki mikið að fara í röð skal ég nú segja ykkur.  Það var reyndar auveldara að komast inn heldur en út, þetta var alveg ótrúlegur troðningur. Þetta endaði sem sagt snemma og ég skutlaði Helgu heim og ég fór mína leið að skemmta börnunum og koma mér í háttin..

Ég er sem sagt að passa pínu litla loðna barnið þeirra Dodda og Ragnheiðar. Hann er bara rétt 7-8 mánaða og litla rúsínan mín kæmist inn í hann og hún er orðin fimm ára. Rosalegt!!!! hihihi  Hann þarf stanslausa athygli sem ég er ekki vön að þurfa að gefa mínu barni þar sem hún er ótrúlega sjálfbjarga og kemur bara rétt til að kúra þegar ég horfi á sjónvarpið eða sest á blöðin þegar ég les þau og situr á tölvunni þegar ég er að braska þar en aldrei neitt vesen á stelpunni.  Það er annað með guttann. Hann eltir mig út um allt, stekkur á lappirnar á mér ef ég gef honum ekki þá athygli sem hann þarf, hann bítur mig í hendurnar þegar hann vill láta klappa sér og svo um daginn þegar ég var að fá mér ab-mjólk í morgunmat þá var hann byrjaður á henni þegar ég snéri mér við til að setja fernuna í ísskápinn. Ótrúlegur drengur hehehehe

En nú ætla ég að hafa rólegan sunnudag með krúttunum og horfa bara á sjónvarpið, jafnvel taka nokkur dansspor þegar ég er búin að horfa á So you think you can dance"  snilldar þáttur.

En þangað til næst.... ekki plana um of því það virðist aldrei fara eins og það var planað heheh


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.07.2007 21:13:16 / elsab79

önnur ágæt helgi!!

Helga María fór á kostum eins og svo oft áður eftir neyslu áfengis í frekar miklu magni hehehe.  Hún var nú ekki lengi að finna framtíðareiginmann sinn sem hún ætlar að bíða eftir í 40 ár og fann að sjálfsögðu þann sem hún ætlar að giftast eftir 50 ár og svo þann sem hún ætlar að vera gift þangað til. Þannig fór nú leit hennar að eiginmanni handa mér en eins og flestir vita er ég fullfær um að finna hann sjálf þó svo að flestir haldi að ég hafi nú ekki verið neitt voðalega heppin með það heheheh   En ég er búin að finna hann þó svo að fólk haldi annað og það skemmtilega við það er að enginn veit neitt um það þó að sumir haldi að þeir viti allt um það múhahahaha.....óheppilegt fyrir alla nema mig... ahh:S hann veit það reyndar ekki heldur þannig að .... óheppilegt fyrir alla hahahah

Eftir þessa helgi verður líka aðeins slakað á, ekkert tjútt og rugl á stelpunni alla vegana í 5 daga hehe og eins og Helgu líður núna þá verður vonandi ekkert rugl á henni og eiginmanni hennar næsta mánuðinn hihihi

en best að taka setningar helgarinnar...

- ekki!!!

-ég bíð eftir þér í 40 ár

-hann er svo mikil drusla að við verðum skilin eftir 5

-Elsa Elsa rúðuþurrkudansinn!!!!


-þú ert of cool fyrir mig

-hahaha trúir þú þessu, tveir geðsjúklingar

 

en þangað til síðar ..... blee.....


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.07.2007 11:57:31 / elsab79

já svona er það bara

Núna er sumarfríið bara alveg að verða búið, byrja að vinna á fimmtudaginn...  

þannig að þið sem eruð óklippt getið nú tekið gleði ykkar á ný og pantað tíma... nema Jói greyið hahahah hann fór í klippingu í síðustu viku, en ég gæti auðvitað reynt að laga það fyrir þig krútt hahahahah

En nú að helginni... Við Helga áttum nokkuð góða helgi.  Tókum laugardaginn í það að fara í Kringluna og reyna að finna okkur eitthvað sem við gætum nú verið í um kvöldið og fór það bar nokkuð vel þrátt fyrir að ég hefði endað í einhverju sem ég átti inni í skáp... erfitt að fara í ný föt 8|   svo í kringum sjö náði ég aftur í Helgu og við settumst fyrir framan tölvuna og sjónvarpið og gerðum þennan líka frábæra geisldisk sem fylgdi okkur að sjálfsögðu á tjúttið og við fundum meira að segja dj sem var til i að spila nokkra góða smelli af honum.  Og vitiði hvað... honum líkaði þetta líka svona ljómandi vel að hann stal disknum okkar, sagðist ekki finna hann... jájá einmitt.  En við fórum bara heim og skrifuðum nýjann ;)  Helga fann líka eiginmann sinn þetta góða kvöld þó svo að hún hafi nú ekki talað mikið við hann heheh. En allt endaði þetta vel hjá okkur og skutlaði Hörður okkur heim og skil ég vel að hann vilji fá að skutla okkur næst þegar við ætlum að tjútta..

Sunnudagurinn byrjaði svo auðvitað á því að reyna að ná andlitinu af.  Ef þið viljið vera með eitthvað í andlitinu um versló þá mæli ég með AVEDA, ég get haldið áfram að tjútta um leið og ég vakna, er enn með andlitið á mér. hehehe 

En ég hringdi og vakti Helgu og minnti hana á það að við ætluðum að kíkja á Rizzo um leið og við færum á fætur. Þegar við vorum búnar að borða þurftum við aðeins að horfa á one tree hill og hidden palms sem er uppáhalds þátturinn hennar Helgu eins og er hihi   svo fékk Helga mikla löngun til að sjá Hveragerði þannig að við rúntuðum þangað og tókum svo rúntinn aðeins lengra og enduðum á Eyrabakka  og hljómaði Mr. Big í tækinu nánast alla leiðina..

Nokkrar setningar sem eru okkur minnistæðar eftir helgina:

-what a fuck

-I'm the one who wants to be with you

-Helga ber þig

-Hver er ekki í nærbuxum þegar þeir eru í gallabuxum...

-Ég þoli hann ekki...

-er hann í skyrtu  :klikk:

-oh hann er í bol

-lag nr. 3

-red red wine

-kláraðu úr glasinu þínu

-hringdu í mig þegar ég byrja að vinna og þá skal ég segja þér hvernig ég ætla að klippa þig

-hvað er ég að þykjast leita

-er það ekki bara nr. 16

-ég sakna Peter Andre

-henni blæðir, getur hún fengið plástur

-ef að þetta virkar þá verð ég alltaf með hníf á tjúttinu...

-æji ég klippi hann 

 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

29.06.2007 20:09:38 / elsab79

sól og sumar

Ég gæti bara ekki verið heppnari með veður í sumarfríinu mínu, er búin að liggja í sólinni allt fríið, fór norður í 3 daga og hafði það fínt þar. En er eiginlega bara komin með leið af sól núna.

Ég átti alltaf eftir að segja frá óvissuferðinni norður um daginn eða alveg hreint í mai, en vitiði....... ég ætla ekki að segja neitt nema að það var algjör snilld.  Enginn smáatriði í boði...

En ég nenni ekki að skrifa meira þannig að ég ætla að halda áfram að gera það sem ég var að gera....   EKKI NEITT :lol:


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.06.2007 13:57:38 / solla

blogg!!!

Ég verð víst að blogga til þess að Elsa hafi nú enga afsökun til þess að henda inn einu bloggi!!!

 Hvað er búið að vera að gerast.....6 vikna æfingatörn með landsliðinu búin veiii að maður skuli vakna kl 5:30 á morgnana til að fara á æfingu bara til að geta spilað fyrir Íslands hönd! Maður þarf að fara með hausinn í tjékk!! En þetta var nú samt skemmtilegt og mjög gaman að fá að láta Þjóðverja rúlla yfir sig ;)

 

Síðan er bara búið að vera djamm... skoraði nokkur stig hjá Elsunni um daginn þegar ég gleymdi símanum mínum og lét hana bíða og bíða...greyið ein heima með hvítvínsflöskuna og ég týnd...það voru svona 15 ósvöruð símtöl (frá Elsu) og tvö í viðbót frá fólki sem hún var að láta tjékka á mér!! Ég varð allavega pínu smeyk þegar ég leit á símann því ég þekki Elsu þegar hún er tjúll :-/ en eftir nokkur glös var hún búin að gleyma þessu og komin í stemmninguna á Vegamótum. Ég hins vegar tók enda áhættu á að vera nálægt henni og hélt mig á Óliver og það var ótrúlegt en satt mjög gaman þar. Nokkrir útlendingar með bakpoka á bakinu á dansgólfinu....töff J

 

Við Elsa tókum svo létt djamm á laugardaginn....fórum á kostum á Boðagrandanum að syngja Michael Buble og fleiri góða slagara! Fórum snemma í bæinn og eftir að hafa seðjað hungrið á pylsubarnum var ónefndur færeskur foli svo elskulegur að skutla mér heim... takk takk J Elsan fór aftur í bæinn, nema hvað, og gerði fullt af heimskupörum en mér tókst ekki að fá leyfi hjá henni til að birta þá!! Skamm skamm Elsa ;) Verðið bara að hringja í hana ef þið viljið fá að vita hvað hún gerði af sér.  

 

Sandgerði í kvöld...veii ekkert skemmtilegra en að sitja úti að frjósa úr kulda og horfa á íslenska knattspyrnu eins og hún gerist best....gæði,gæði,gæði ;) Elsa ætlaði með en ákvað í staðinn að flýja norður til þess að sleppa L

 

Svo er það bara Reyðafjörður, Reyðafjörður og aftur Reyðafjörður....er komin í áskrift hjá flugfélaginu ;) Jæja Elsa það er komið að þér!!!!!!!

» 3 hafa sagt sína skoðun

31.05.2007 08:11:11 / elsab79

dauði og djöfull

ligg veik heima, gjörsamlega óþolandi. Get voðalega lítið sofið, næ varla andanum og er með beinverki og dúndrandi höfuðverk og þá er óþolandi að geta ekki sofið. Er samt skárri en í gær og þriðjudagskvöldið, þannig að vondandi verð ég komin á lappir á morgun. Ekki hægt að láta kúnnana bíða svona eftir sér. Það er eitt það erfiðasta við þessa vinnu, kúnnarnir treysta á þennan tíma, búnir að plana allt í kringum hann og svo þurfa þeir að finna nýjan tíma sem hentar þeim, sem vissulega getur verið mjög erfitt þegar fólk hefur mikið að gera.  En ég ætla bara að hafa þetta stutt, skrifa seinna um frábæru óvissuferðina sem við fórum í um daginn, hún var æði, pant ekki vera í nefnd fyrir næstu óvissuferð á stofunni því það verður erfitt að toppa þetta....

en vonandi verð ég komin í vinnu á morgun bleble


» 8 hafa sagt sína skoðun

01.05.2007 18:26:53 / elsab79

prófleiði

Það er að koma yfir mig prófleiði, ég er orðin hundleið á að þið öll skuluð vera í prófum. Mikið hlakka ég til þegar við erum öll búin  í prófum og verðum alltaf laus til að gera eitthvað skemmtilegt í desember og mai og svo auðvitað í ágúst hjá ykkur bjánunum sem félluð heheh

EN síðan síðast þá hefur ekki mikið gerst hjá stelpunni. Bara að vinna og hanga með nýju tölvunni minni og flakkaranum, reyna að plata skólafólk með mér að gera eitthvað, sumir láta undan aðrir ekki. Við suma reyni ég ekki einu sinni að tala (þetta á við um þig Rakel).  Já og þið sem eruð í prófum og voruð búin að hugsa að þið þyrftuð kannski að fara í klippingu hjá stelpunni þegar prófin eru búin skuluð hafa samband sem fyrst því þið eruð ekki eina fólkið sem er í skóla og ekk eina fólkið sem ég klippi ;)

Annað er ekki af mér að frétta nema að 18. mai er ég að fara í óvissuferð til Húsavíkur, já þið lásuð rétt,hahha þetta er ÓVISSUFERÐ til Húsavíkur. En óvissan er sem sagt sú að þegar þangað er komið vitum við ekki hvert skal haldið eða hvað skal gera... ja ég veit það reyndar og hann pabbi minn því það er hann sem er að undirbúa þetta allt saman og stjórnar þessu öllu saman.  Allir á stofunni eru að springa úr spenningi að ég best veit nema þeir sem voru svo vitlausir að ákveða að koma ekki með hehehe

Annað sem er að bögga mig þessa dagana er að maður er alveg hættur að geta treyst á fólk.  Ég get treyst á köttinn það er ekki málið en þegar kemur að fólki þá er nú bara ekki hægt að treysta hverjum sem er. Ég er hreinlega hætt að geta treyst á sjálfa mig meira að segja hehe.  Ég lenti sem sagt í samræðum við vin minn um daginn um þetta og enduðum með þá niðurstöðu að fólki er ekki treystandi og við ætlum hér eftir að hugsa framtíðina með það í huga. Sem sagt hætta að hugsa +1 eða fleiri. Þið sem vitið um heimasíðu dönsku frostpinnasjálfsalans látið mig vita. hahhaah  en það er framtíðin.

Kveð að sinni...


» 9 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti